fasteignasölur.is
Aguas Nuevas
1 af 13

Um eignina

Zenterhouse kynnir glæsilegt 4 herbergja einbýli í Aguas Nuevas hverfinu. 

Svæði: Costa Blanca Suður, Aguas Nuevas.
 
·        Húsið er 143 fm á tveimur hæðum og stendur á 300 fm lóð.
·        Þrjú svefnherbergi, ein stofa og tvö baðherbergi með gólfhita. 
·        Stórir gluggar í stofu sem snúa út að sundlaug og garði.
·        Einkasundlaug fylgir eigninni.  
·        Stórar þaksvalir á eftu hæð hússins með grillaðstöðu.
·        Einkabílastæði.
 
Eignin er í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá miðbæ Torrevieja, í 900 metra fjarlægð frá ströndu og í göngufæri við úrval veitingastaða og verslana. 

EIGINLEIKAR EIGNAR: BÍLSKÚR, EINKA SUNDLAUG, ÞAKSVALIR, NÝBYGGING, SÉR GARÐUR, ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI

Kostnaður og fjármögnun:
Kaupverð eignarinnar miðar við gengi Evru  á skráningardegi, sem eru 136 kr. Spænskur söluskattur (10%) reiknast af kaupverði eignarinnar og er ekki innifalinn í verði eignarinnar. Einnig er gott að miða við 2-3% í greiðslu stimpilgjalda og umsýslukostnaðar. Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá spænskum bönkum. 

Skoðunarferðir:
Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar fást með tölvupósti á netfangið info@zenterhouse.is eða í síma 557-1400. 

Reference: ZUR1501
 

Aguas Nuevas

1000 Útlönd - Annað
47.600.000 kr.333 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2019TegundEinbýlishúsStærð143 m²Herbergi4FasteignanúmerF2232112
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 13 myndir

Upp ↑