Um eignina
Spánn, Ciudad Quesada, 6 herbergja einbýli á 800 m2 suður hornlóð, stutt í alla þjónustu. Mjög fallegt og vandað hús.
Byggingameistari byggði þetta mikla og fallega hús fyrir sína fjölskyldu með þægindi og mikla birtu sem grunnatriði við hönnun hússins sem er alls 365 m2 og bíður uppá 4 svefnherbergi og eitt gesta herbergi í kjallara, 4 baðherbergi, Gufubað, GYM m.a.
Aðalhæð þar sem jafnframt er aðalinngangur (alls 3 inngangar) er frá stórri yfirbyggðri verönd, þar kemur maður inn í hol sem leiðir beint inn í stóra stofu. Til hliðar við stofu er matstofa og þar innaf er stórt aðskilið eldhús sem hefur eigin útgang út í garðinn. Stórt baðherbergi á aðalhæð.
Efri hæð hefur 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi, hjónaherbergi með eigið baðherbergi og stórar svalir sem snúa að garðinum en 3 svefnherbergi hafa sínar eigin svalir og með glugga í tvær áttir.
Frá aðalhæð er gengið niður á jarðhæð sem hefur jafnframt eiginn inngang frá garði. Gluggar til vestur gefa mikla birtu í öll aðalrýmin en þarna er m.a að finna gestaherbergi, líkamsrækt, sauna, aukaeldhús og þvottaherbergi.
Garðurinn er með stórri einkasundlauug, fallegum trjám og „pavillon' sem er nýttur sem grillskáli á sumrin, en honum er auðvelt að loka með glerveggjum og nota sem vetrarstofu.
Yfir byggt bílastæði innan lóðar.
Viðargólf á öllum svefnherbergjum, 3 baðherbergi með baðkari (jacuzzi), allt vatn inn í húsið er afkalkað, loftkæling er í húsinu, mjög mikið lagt í við byggingu hússins.
Húsið er alls 364 m2 með veröndum en hver hæð er 10x10 metrar, lóðin er 800 m2.
Stutt er í alla þjónustu í miðbæ Quesada og ca 7-8 km eru níður á Guardamar ströndina, stutt á alla Golfvellina í nágrenninu, ca 35 mínútna akstur er á Alicante flugvöll.
Verð er 630.000 evrur, íslenskt verð miðast við 1 evra = 146,2 kr. ísl
Allt að 75% lánsfjármögnum til Íslendinga í boði hjá okkar spænska banka.
------
Efalius Fasteignamiðlun er Íslenskt/Spænskt fjölskyldu fyrirtæki sem starfað hefur við fasteignasölu og miðlun í Torrevieja á Spáni síðan 2010, skráð fasteignasala í Valencia með númer RAICV 4640 og lögboðna tryggingu.
Við bjóðum upp á nýjar og notaðar eignir í öllum verðflokkum, frá studio íbúðum til stærstu gerð einbýlishúsa á Costa Blanca, Costa Calida og Costa del Sol. Höfum alltaf einhver stærri fjárfestinga dæmi í boði, frá bönkum og einkaaðilum. Höfum alltaf ca 1000 notaðar eignir á söluskrá í gegnum okkar tenglanet.
Velkomin að hafa samband ef þið eruð í leit að einhverju sérstöku.
Við bjóðum uppá 2-7 daga skoðunarferðir og endurgreiðum ferðakostnað fyrir tvo í nær öllum tilfellum ef keypt er ný fasteign í gegnum okkur. Velkomin að hafa samband fyrir skipulagðar skoðunarferðir fyrir einstaklinga og hópa.
Skattar og gjöld er keypt er fasteign á Spáni eru á bilinu 11,5-13,5 % sem skiftast þannig:
- 10 % skattur leggst ofan á kaupverð á nýjum og notuðum eignum. (8% í Murcia á endursölu)
- 1,5-2 % stimpil skattur leggst ofan á kaupverð á nýjum eignum.
- 1-1,5 % breytileg gjöld vegna þinglýsingar, skráningar fasteignar, Notari kostnaður m.m.
--
Spánn, Ciudad Quesada, 6 herb. 364 m2 einbýli
Allar 41 myndir
Upp ↑







































