Um eignina
Lögmannsstofan Sævar Þór & Partners kynnir til sölu: Glæsilegt atvinnuhúsnæði að Hverfisgötu 33 (2239638) í hjarta Reykjavíkur. Aðgengi að eigninni er til fyrirmyndar og er bílastæðahús staðsett hinum megin við götuna.
Um er að ræða einstakt skrifstofu- og atvinnuhúsnæði með sérinngangi og lyftu. Eignin er á þremur hæðum auk kjallara, alls 465,6 fm að stærð. Hluti rishæðar er undir súð og því gólfflötur stærri en uppgefnir fermetrar. Húsið er steinsteypt og var klætt 1997-1998 með loftræstri álklæðningu ásamt því sem kvistgluggar voru settir á húsið.
Á jarðhæð er gengið inn um sérinngang en þar er rúmgott herbergi með stórum gluggum. Á jarðhæð er jafnframt salerni með aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Á annarri hæð eignarinnar er skrifstofa sem vandalítið er að umbreyta. Miðrýmið er opið og bjart. Þar er að finna nýlegt og notalegt eldhús með tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgott fundarherbergi með gluggum í tvær áttir ásamt tveimur rúmgóðum skrifstofum innst á hæðinni, önnur með glugga í tvær áttir og hin með einum, en báðar bjóða upp á einstætt útsýni yfir mannlíf og lifandi borg. Á hæðinni er einnig salerni og tvær geymslur, önnur eldvarin. Á gólfi er fallegt og slitsterkt steinteppi ásamt eikarparketi. Kerfisloft með hljóðeinangrun.
Þriðja hæð eignarinnar er að hluta undir súð með kvistgluggum. Á hæðinni er fullútbúinn viðburðar- og fundarsalur sem nýta má á marga vegu. Í rýminu er gott geymslurými með rennihurðum. Á hæðinni eru einnig flísalagðar svalir sem snúa út að götu með frábæru útsýni yfir Hverfisgötuna. Á hæðinni er eldhúsaðstaða í öðru rými með viðarinnréttingu ásamt fundarborði. Frammi á gangi er fatahengi og skápur með stálvaski og inn af því tvö salerni með flísum á gólfi. Í kjallara eignarinnar eru tvær rúmgóðar læstar geymslur, sameiginlegt lagnarými, ruslakompa og vörumóttaka.
Húsnæðið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og frábæra staðsetningu í hjarta borgarinnar. Ástand hússins er gott. Lagnir, gólf og innréttingar voru endurnýjaðar árið 2006.
Mikil gróska hefur einkennt Hverfisgötuna á síðustu misserum með tilliti til endurnýjunar og uppbyggingar. Hér er því um að ræða fágætt tækifæri til að tryggja fastan sess á einstöku og spennandi svæði í borginni.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Sævar Þór Jónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 891-6303 - saevar@saevarthor.is
Hverfisgata 33
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































