fasteignasölur.is
Villamartin
1 af 21

Um eignina

Zenterhouse kynnir 4 herbergja stórglæsilegt raðhús í Villamartin hverfinu með einkasundlaug.

Svæði: Costa Blanca Suður, Villamartin

Húsið er 99,8 fm á tveimur hæðum auk stórra þaksvala og stendur á 112 fm lóð.
Þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi. 
Vel skipulögð einkaverönd ásamt einkasundlaug.
Eigninni fylgir líka aðgangur að sameignlegum garði með sundlaug.

Nánar um eignina:
Gengið er inn af garði á jarðhæð. Á jarðhæð er björt stofa, fullbúið eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Á annarri hæð eru tvö stór svefnherbergi með skápum og sér baðherbergjum. Stutt í allra helstu þjónustu svo sem matvöruverslanir og apótek, en um 10 mín akstur er í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og 15 mín akstur á 4 helstu gólfvellina á svæðinu þá Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas.

Kostnaður og fjármögnun:
Kaupverð eignarinnar miðar við gengi Evru á skráningardegi, sem eru 148 kr. Spænskur söluskattur (10%) reiknast af kaupverði eignarinnar og er ekki innifalinn í verði eignarinnar. Einnig er gott að miða við 2-3% í greiðslu stimpilgjalda og umsýslukostnaðar. Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá spænskum bönkum. 

Skoðunarferðir:
Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar fást með tölvupósti á netfangið info@zenterhouse.is eða í síma 557-1400. 
 

Villamartin

1000 Útlönd - Annað
31.000.000 kr.311 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 3 bað
Byggingarár2020TegundRað-/parhúsStærð99,8 m²Herbergi4FasteignanúmerF2241110
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 21 myndir

Upp ↑