fasteignasölur.is
Los Balcones
1 af 19

Um eignina

Zenterhouse kynnir glæsilegar íbúðir í Los Balcones í nýjum íbúðarkjarna.
 
Svæði: Costa Blanca Suður, Los Balcones
Glænýjar íbúðir í tveggja hæða húsum.
Sameiginlegur garður með stórglæsilegri sundlaug og leiksvæði fyrir börn. 
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Neðri hæð með stórum einkagarði eða efri hæð með svölum úr stofu og sólþaki yfir allri íbúðinni.

Nánar um eignina:
Hægt er að velja um neðri hæð með lokuðum sérgarði eða efri hæð sem kemur með góðum svölum sem gengið er út á af stofu og svo líka þaksvölum yfir allri íbúðinni. 
Hér er um að ræða stórglæsilegar íbúðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góð stofa og opið eldhús. Sameigninlegur lokaður garður með góðri sundlaug og fallegu útisvæði með leiksvæði fyrir börn. 

Athugið að verðin á íbúðunum er frá 26.300.000kr fyrir neðri hæð og 29.300.000kr fyrir efri hæð.

Stutt í alla helstu þjónustu svo sem matvöruverslanir og apótek, en um 10 mín akstur er í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og 15 mín akstur á fjóra helstu gólfvellina á svæðinu þá Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas.

EIGINLEIKAR EIGNAR: SUNDLAUG, NÝBYGGING, NÁLÆGT GOLFVELLI, LOFTKÆLING, HEITUR POTTUR, ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI,

Kostnaður og fjármögnun:
Kaupverð eignarinnar miðar við gengi Evru á skráningardegi, sem eru 155 kr. Spænskur söluskattur (10%) reiknast af kaupverði eignarinnar og er ekki innifalinn í verði eignarinnar. Einnig er gott að miða við 2-3% í greiðslu stimpilgjalda og umsýslukostnaðar. Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá spænskum bönkum. 

Skoðunarferðir:
Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar fást með tölvupósti á netfangið info@zenterhouse.is eða í síma 557-1400. 

Los Balcones

1000 Útlönd - Annað
26.300.000 kr.351 þ./m²
Hæð2 svefn · 2 bað
TegundHæðStærð75 m²Herbergi2FasteignanúmerF2241118
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 19 myndir

Upp ↑