fasteignasölur.is
Cabo Roig
1 af 21

Um eignina

Zenterhouse kynnir einkar glæsilegt einbýlishús í Lomas de Cabo Roig.

Nánar um eignina:
Virkilega glæsilegt einbýlishús með stórum og viðhaldsléttum garði sem gengið er beint úr í sundlaugagarð sem er nýbúinn skipta um gólfefni. Húsið er á tvemur hæðum og fylgja öll húsgögn með. Gegið er úr garði inná aðalrými íbúðarinnar sem skiptist í stóra stofu með arin, fullbúið eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Gengið er upp úr stofu á aðra hæð þar sem eru 2 stórum svefnherbergum og baðherbergi. Hjónaherbergið er með mjög góðum fataskáp og gengið er út á stórar svalir beint úr herberginu. Af efri hæðinni er svo gengið uppá sólþak sem er mjög víðsínt og frábært í kvöldsólinni.

Stutt í alla helstu þjónustu svo sem matvöruverslanir og apótek, en um 5 mín akstur er í Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina og 15 mín akstur á 4 helstu gólfvellina á svæðinu þá Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas.

EIGINLEIKAR EIGNAR: SUNDLAUG, NÁLÆGT GOLFVELLI, LOFTKÆLING, SÉR GARÐUR, ÞJÓNUSTA Í GÖNGUFÆRI, HÚSGÖGN FYLGJA, ÞAKSVALIR

Kostnaður og fjármögnun:
Kaupverð eignarinnar miðar við gengi Evru á skráningardegi, sem eru 150 kr. Spænskur söluskattur (10%) reiknast af kaupverði eignarinnar og er ekki innifalinn í verði eignarinnar. Einnig er gott að miða við 2-3% í greiðslu stimpilgjalda og umsýslukostnaðar. Möguleiki er á allt að 70% fjármögnun frá spænskum bönkum. 

Skoðunarferðir:
Zenterhouse býður upp á skipulagðar skoðunarferðir til Spánar á sanngjörnu verði, fyrir allt að tvo aðila, þar sem kostnaður er síðan að fullu endurgreiddur við kaup á fasteign. Innifalið í skoðunarferðum er flug, gisting og ferðir til og frá flugvelli. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef áhugi er fyrir hendi til þess að fara til Spánar og skoða eitthvað af þeim fjölmörgu eignum sem við höfum upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar fást með tölvupósti á netfangið info@zenterhouse.is eða í síma 557-1400. 

Cabo Roig

1000 Útlönd - Annað
31.900.000 kr.
Einbýlishús3 svefn
TegundEinbýlishúsStærð0 m²Herbergi4FasteignanúmerF2241124
Skráð hjá
HeimilisfangNicolas de Bussi 1732, 03189 Playa FlamencaSími557-1400

Allar 21 myndir

Upp ↑