Þessi eign er ekki lengur í sölu.
1 af 26
Um eignina
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Sóleyjarima.
Stórglæsileg þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýlegu húsi við Sóleyjarima í Grafarvogi. Eignin er með sér inngangi , einnig er sér afnotaréttur á lóð bæði að framan og að aftan.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskáp.
Eldhús, stofa og borðsofa eru í stóru sameiginlegu rými.
Eldhúsinnréttingin sem er sérsmíðuð, er með einstaklega miklu skápaplássi. Vinnuaðstaða við eyjuna er mjög góð. Öll eldhústæki eru frá AEG. Borðplötur eru úr Granít. Úr stofunni er útgengt út á skjólgóðan sér afnotarétt sem tilheyrir einungis þessari íbúð.
Svefnherbergin eru tvö, þau eru bæði mjög rúmgóð. Inn af hjónaherberginu er gott fataherbergi.
Úr öðru herberginu er útgengt út á sér afnotaréttinn sem er að aftanverðu. Leyfi er til þess að girða hann af.
Baðherbergin eru tvö, þau eru bæði sérlega glæsileg. Flísar eru á gólfum, stór walk in sturta með sturtugleri upp í loft á báðum baðherbergjum og upphengd salerni. Annað baðherbergið er staðsett við forstofu og hitt er inn af hjónaherbergi.
Rúmgott þvottahús er innan íbúðarinnar.
Allar hurðar eru sérsmíðaðar og eru í aukinni hæð. Fallegt harðparket er á gólfum. Íbúðin er kynnt með gólfhita. Íbúðinni fylgir bílastæði beint fyrir framan húsið.
Sér geymsla fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Þetta er virkilega falleg eign á góðum stað á þar sem stutt er í alla þjónustu eins og til dæmis verslunarkjarnann í Spönginni..
Vantar allar gerðir eigna á skrá. Fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan Grafarvogi
104.900.000 kr.735 þ./m²
+113,2% á 10 árum
29. júlí 2016Fyrsta sala
49.200.000 kr.345 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Sóleyjarimi 13
112 Reykjavík
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2015TegundFjölbýlishúsStærð142,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF235404571Fasteignamat97.050.000 kr.Brunabótamat74.650.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Sambærilegar eignir í hverfinu
Allar 26 myndir
Upp ↑




























