fasteignasölur.is
Þessi eign er ekki lengur í sölu.
Stangarholt 36
1 af 40

Um eignina

Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavik, sími 533-440 kynnir mikið endurnýjaða hæð með aukaíbúð við Stangarholt, Reykjavik. Birt stærð er 119,4 fm.
Lýsing íbúðar á 1. hæð: Gengið er inn á hæðina um sameiginlegan inngang með einni annari íbúð sem er á 2. hæð hússins. Íbúðin samanstendur af litlu holi, hjónaherbergi, baðherbergi, barnaherbergi, eldhúsi, stofu og stiga sem liggur niður í aukaíbúð, núverandi eigendur hafa útfært geymslu aðstöðu við neðri enda stigans en auðvelt er að fjarlægja hana og sameina íbúðirnar aftur. Góðar suðursvalir. Þá hafa núverandi eigendur sett tengi fyrir þvottavél í geymslu undir stiga í sameign. Lýsing aukaíbúðar í kjallara: Gengið er inn um sameiginlegan inngang í kjallara. Íbúðin sem er skráð á sama fastanúmer og íbúð 1. hæðar samanstendur af eldhúsi, baðherbergi, stofu og svefnherbergi. Þá er lítill geymsluskápur undir stiga. Nánari lýsing íbúðar á 1. hæð. Gott hjónaherbergi með stórum fataskáp. Barnaherbergi með fataskáp (var áður eldhús). Baðherbergi með glugga og viftu, baðkar, flísalagt með flísum frá Ebson. Tvær stofur og er eldhús inni í annarri stofunni, endurnýjuð falleg eldhúsinnétting frá Kvik með stórri eyju. Stór hurð með síðum glugga út á suðursvalir. Sjarmerandi eldri pottofnar í stofum sem tengdir voru að nýju 2023. Geymsla undir stiga þar sem tengi er fyrir þvottavél, í sameign er einnig skápur. Sameiginleg köld geymsla undir úti tröppum. Gluggar eru á þrjá vegu í íbúðinni sem hafa allir verið endurnýjaðir á síðustu árum. Vegna legu á húsinu í enda götunnar er garðurinn gróinn og stór, þá er gott útsýni að Háteigskirkju og birtan mikil inni í íbúðinni. Sameiginlegt malarplan með 2. hæð hefur verið útbúið á þessu ári með innkeyrslu frá Nóatúni.
2023 var íbúðin flotuð og vínyl parket lagt á íbúðinni í síldarbeinsmunstri að undanskildu baðherbergi sem var flísalagt. Þá var sett svart rafmagnsefni og svört blöndunartæki. Nánari lýsing aukaíbúð í kjallara. Eldhús með glugga og gólffísum. Stofa og innan af stofunni er flísalagt sturtubaðherbergi með glugga. Svefnherbergi með skáp. Vínyl parket í sama lit og á efrihæð sem var lagt á gólfið í byrjun árs 2024. Íbúðin er hálf niðurgrafin en með góðum gluggum og birta ágæt. Gluggar hafa verið nýlega endurnýjaðir.
 
Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í Holtunum. Aukaíbúð með mögulegum leigutekjum. Mikið endurnýjuð eign. Bílskúrsréttur að fengnu byggingarleyfi.
 
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á kjoreign@kjoreign.is
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða asta@kjoreign.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Kjöreign
94.500.000 kr.791 þ./m²
+31,3% á 3 árum
6. júní 2023Þinglýstur kaupsamningur
72.000.000 kr.463 þ./m²
+18,0% á 2 árum
10. maí 2021Þinglýstur kaupsamningur
61.000.000 kr.393 þ./m²
+79,9% á 7 árum
5. desember 2013Fyrsta sala
33.900.000 kr.218 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Stangarholt 36

105 Reykjavík
Fjölbýlishús
Byggingarár1951TegundFjölbýlishúsStærð119,4 m²Herbergi5FasteignanúmerF20118653Fasteignamat93.150.000 kr.Brunabótamat70.550.000 kr.
Skráð hjá
Kjöreign
HeimilisfangÁrmúla 21, 108 ReykjavíkSími533-4040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Sambærilegar eignir í hverfinu

Allar 40 myndir

Upp ↑